Archive for ágúst, 2006

-Mission impossible- Ég var að fá tölvupóst frá dr…

ágúst 7, 2006

-Mission impossible-
Ég var að fá tölvupóst frá drengjunum í hinni stórgóðu hljómsveit Dave Matthews Band. Drengirnir tjá mér það að til standi að gefa út disk á næstunni sem eigi að innihalda brot af því allra besta sem þeir hafa sent frá sér síðustu 15 árin. Drengirnir treysta sér ekki betur í það verkefni að velja lög á þennan disk en svo að þeir biðja mig um aðstoð. Nú þarf ég sem sagt að setja saman tíu laga lista af mínum uppáhalds DMB lögum sem síðan verður tekið tillit til þegar kemur að því að velja lögin á diskinn. Eins hræðilega klisjukennt og það hljómar, þá er þetta eins og að þurfa að gera upp á milli barnanna sinna…ef ég ætti nú bara börn. Svo er ekkert verið að auðvelda manni hlutina, því að t.d. lögin Pantala naga pampa og Rapunzel, sem allir góðir og gildir DMB aðdáendur telja sem eitt lag, gilda í raun sem tvö lög…og þar með eru bara átta sæti eftir á listanum…woe is me!

Núna þarf að leggja hausinn verulega í bleyti. En ég vonast til að klára listann fljótlega og mun birta hann hérna um leið.

Góðar stundir.