-Nei, þið eruð að grínast!-

Það er ótrúlegt hvað fólk getur endalaust reynt að troða allskonar bulli og vitleysu inn á annað fólk…og það sem er kannski enn verra er að það er til fullt af fólki sem trúir svona bulli.

Þetta er bara fáránlegt. 

Þau segjast lækna allar tegundir krabbameins á öllum stigum sjúkdómsins og luma auk þess á lækningu á alnæmi á ýmsum stigum sjúkdómsins. Svo þegar þau birta vitnisburði frá fólki sem þau hafa “læknað” þá er það fólk sem var með verki í kálfanum, mjöðminni eða þjáðist af úthaldsleysi. Já, ég er alveg að kaupa þetta.

…en ég er náttúrulega svo mikill efasemdarmaður.

Góðar stundir.

9 svör to “-Nei, þið eruð að grínast!-”

  1. Freyja segir:

    Ómægod (vel viðeigandi ekki satt)… þau kunna ekki einu sinni að stafsetja!

  2. Kristján Kontri segir:

    Hmm, já, þetta er svo sannarlega grunsamlegt en maður veltir samt fyrir sér afhverju þau auglýsi þetta svona ef það er ekkert sannleikskorn í þessu…?? Ég hef heyrt um óhefðbundnar lækningar í Mexíkó sem læknar hérlendis hafa engan áhuga á að viðurkenna en þar er fólk læknað af ólæknandi sjúkdómum, m.a. íslendingur sem fór þangað og kom heill heilsu til baka. Þegar þessi íslendingur (kona) sagði lækninum sínum á íslandi frá að hún hefði heyrt um þetta, yppti læknirinn öxlum og fussaði. Hún fór nú samt því hún gat ekki unnið eða notið lífsins lengur og þótt það kostaði pening að fara í meðferð þangað þá hafði hún bara ansi litlu að tapa. Nú man ég ekki hvað þetta var sem amaði að henni en mig minnir að það hafi verið einhver tegund krabbameins sem er ill-læknanlegt. Þannig að þótt ég efist þá ætla ég nú ekki að útiloka neitt.

    En heimasíðan hjá þessu fólki er himneskt helvíti!

  3. Sverrir segir:

    Hvað er þetta fólk að hanga hérna á Íslandi og lækna fólk með verki í fótum og baki þegar þau luma á lækningu á öllum skæðustu sjúkdómum sem hrjá heimsbyggðina?
    Af hverju eru þau ekki í Afríku að vinna á alnæmisvandanum til að mynda? Gætu útrýmt honum á innan við ári miðað við hvað þetta virðist vera einföld og þægileg meðferð hjá þeim.
    Fyrir mér lyktar þetta allt saman af peningaplokki og það bitnar verst á veiku fólki sem er tilbúið að gera hvað sem er til að vinna bug á veikindum sínum og hættir jafnvel á lyfjum af því að þetta fólk heldur því fram að það þurfi ekki á þeim að halda.
    Hvað mig varðar þá falla “trúfræðilegar lækningar” í sama flokk og áruhreinsun og DNA heilun og hvað þetta heitir allt saman. En ég ætti kannski að taka þig á orðinu og leyfa þeim að meðhöndla hnúðinn góða…þá kannski sannfærist ég :)

  4. Jóhann segir:

    Það er nú einmitt þekkt aðferð svona “svikara” að auglýsa sig og fá þannig viðskipti. Vitnisburðir sem eru á vefsíðunni eru svo greinilega falsaðir að það hálfa væri nóg. Í fyrsta lagi virðast viðskiptavinir “læknanna” hafa sömu stafsetningarvillutendensa og læknarnir sjálfir ásamt því sem þeir eiga það til að tala um alla í fyrstu persónu.

    “leitaði kona mín til Reglunnar og spurðist fyrir um hvort við gætum hjálpað manni sínum með þetta vandamál. Þar sem þetta er hluti af þeirra starfsemi, þótt það sjálfsagt að hjálpa. “

  5. Jón Arnar segir:

    Ég trúi þeim … ég meina … ef þau eru að ljúga þá komast þau ekki til himna ! – og þar með er það útrætt ;o) (lesist með vott af kaldhæðni)

    Má hinsvegar ekki gleyma því að þekkt eru mörg dæmi um einstaklinga sem læknast hafa af ýmiskonar kvillum með því einu að borða græn epli (eða taka “aðrar” lyfleysur). Vísindamenn eru jafnvel farnir að rannsaka mátt lyfleysunnar til að lækna marga kvilla, því komið hefur í ljós í rannsóknum á lyfjum að alltaf eru til einstaklingar sem sýna góð viðbrögð við meðferð – jafnvel þó þeir taki lyfleysur !

    … verst er það hinsvegar að lyfleysan guð virðist oft vera seld dýrasta verðinu …

  6. Hannes segir:

    Ég rak augun í eftirfarandi á síðunni:

    “Vinsamlega pantið meðferð með því að senda okkur T-PÓST.”
    “Hjá okkur í himnaríki eru nú yfir 238.000 íslendingar og nokkuð af FRÆGU FÓLKI.”

    Er t-póstur orðinn vinsæll á Íslandi eða hef ég misst af þessu “nýyrði”? Af hverju er mikilvægt að taka fram að það sé frægt fólk í þeirra himnaríki? Hverjir eru þessir Íslendingar?

    Mér finnst þetta skuggalegt. Af hverju segjum við að Kaninn sé skrýtinn? Við erum ekki nema um 300.000 og gortum okkur af því að menntunarstig þjóðarinnar sé hátt. Samt þrífst svona lagað og bókstafstrú á landinu. Erum við eins vel upplýst og við viljum halda fram?

  7. Sigurgeir segir:

    Vá … og ekkert smáræðis frægt fólk heldur. Listinn er ótrúlegur: Merilin Monro, George C. Scott as Patton, Freddie – Queen, Reeves as Superman og síðast en ekki síst Whom will we help next?

    ,,Við getum læknað sjúklinga sem hefðbundin læknisfræði getur ekki læknað og við gerum það án þess að sjúklingurinn verði var við að hann hafi verið meðhöndlaður, nema auðvitað að honum líður betur.” ,,Allir okkar sjúklingar eiga að geta náð fullum bata, ef upplýsingar um sjúkdóminn og ástand sjúklingsins eru réttar og nákvæmar.”

    Sjúklingur: Bíddu, ha? Er þetta bara komið? Er allt báttið búið? Ég fann bara ekkert fyrir því að ég hafi verið meðhöndlaður. Þetta er ótrúlegt.

    Mánuði síðar…
    Sjúklingur: Heyrðu, ég finn bara engan mun á mér. Ég krefst þess að ég fái endurgreitt!
    Haukur: Nei, það getur þú ekki gert. Þetta er skrýtið. Þú hlýtur bara að hafa ekki gefið okkur nógu réttar og nákvæmar upplýsingarnar.

    …Jesús Pétur Guðmundsson!

    Blessun til ykkar allra,
    Sigurgeir

  8. Gummi Jóh segir:

    Mér finnst skemmtilegt hvernig þetta heiðursfólk, Haukur og Auður hafa verið að rannsaka krabbamein, bakteríur og vírusa í fleiri fleiri ár án þess að nokkur hafi tekið eftir því. Er hávísindaleg rannsóknarstofa búin að vera á Hverfisgötunni öll þessi ár án þess að nokkur maður taki eftir?

  9. Gummi Jóh segir:

    Þetta finnst mér líka fyndið “Fremsti sérfærðingur í hjartalækningum í heiminum, Dr. Christiaan Barnard er einn okkar lækna”

    þessi maður dó 2001 og hætti störfum 1983. Hann kannski vinnur á Hverfisgötunni í gegnum miðla? Hver veit.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.