Þetta myndband er magnað helvíti. Drengurinn er tólf ára gamall og hann spilar milljón sinnum betur en mig getur nokkurn tímann dreymt um. En auðvitað viðurkenni ég það ekki, heldur bendi á þann hræðilega sjúkdóm sem herjað hefur á mig og fjallað var rækilega um í síðasta pistli.
En gjörið svo vel, Tony Royster jr.
P.s. eftir ca. 5:35 lagðist ég hreinlega í gólfið og grét eins og smábarn…tólf ára barn á ekki að geta gert svona.
Góðar stundir.
Viðbót: Ég sé að spilarinn hérna telur niður, og þegar ég talaði um 5:35 þá er það þegar eru ca. 2:15 eftir…magnað helvíti.
apríl 28, 2007 klukkan 9:52 am |
Þetta er bara sýndarmennska. Þessi 12 ára drengur ætti að læra að dramb er falli næst. Svo sýnist mér hann líka vera með “double kick” sem er auðvitað hálfgert svindl.
apríl 29, 2007 klukkan 12:42 am |
Scheize! Magnað helvíti eru orð að sönnu…
apríl 30, 2007 klukkan 3:06 pm |
Datt í hug fyrst að þú ert dottinn inn á þetta topic að sýna ykkur Alex Depue sem tekur þessi líka skemmtilegu lög á fiðlu. Hann er að vísu töluvert eldri en 12 ára en . . . . skemmtilegt engu að síður. ….
maí 3, 2007 klukkan 7:09 am |
double kick sucks! En andskotinn, þetta er bannað, í Guðana bænum ekki setja inn neina 5 ára kontrabassasnillinga hingað.
Heyrðu! hvernig væri að láta trúfélagið lækna þennan hnúð á úlnliðnum þínum, væri það ekki góð tilraun?
maí 3, 2007 klukkan 2:00 pm |
… fer ekki að koma að því að þú getir hringt inn í útvarpsþætti og kynnt þig sem Sverri Þór Sævarsson – öryrkja ?