-Ég og ganglionið mitt-

Glöggir lesendur muna vafalítið eftir úlnliðshremmingum mínum. Sjá hér.

Og sjá mynd 1.1.
ganglion.jpg
Mynd 1.1. (Myndin er sviðsett, þetta er ekki ganglionið mitt)

Fyrir áhugasama er “gaman” að segja frá því að í desember síðastliðnum skaut þessi kúla aftur upp kollinum, og ég er ekki frá því að hún sé tvöfalt stærri í þetta skiptið…og hún sýnir lítið sem ekkert fararsnið á sér. Þess vegna ligg ég undir feldi þessa dagana og melti það með mér hvort ég eigi að fara í fjórða uppskurðinn, eða hvort ég eigi að láta gott heita og leggja trommukjuðana bara að mestu upp í hillu. Síðari kosturinn er svo sem alveg freistandi, enda mjög fínt að geta sagt að síðasta giggið manns hafi verið á Cavern Club.

En hver svo sem niðurstaðan verður, þá er víst að mínir dyggu lesendur fá án nokkurs vafa að lesa allt um það hér á komandi vikum eða mánuðum.

Góðar stundir.

3 svör to “-Ég og ganglionið mitt-”

  1. Sigurgeir segir:

    Þannig að lokagigg í brúðkaupi í sumar er “out of the question”, eða hvað?

  2. Sverrir segir:

    Nei nei, enda er það meira svona prívat gigg…Cavern tónleikarnir var síðasta opinbera giggið.

  3. Sigurgeir segir:

    …Ég skil :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.